aarrgg... alltof mikið að gera... enginn tími í gær fyrir mælingar.. en passaði vel uppá mataræðið :) og drakk fullt af vatni... og í dag er búið að ganga ágætlega.. ekki búin að drekka nóg af vatni :( en verð að þjóta reyni að mæla mig í kvöld og setja það inn á morgun :) bæ á meðan
Posted at 10:17 am by egma
Á morgun er stóri dagurinn...
já.. á morgun hefst átakið mikla :/ er pínu kvíðin.. held að þetta eigi eftir að gangi ílla til að byrja með.. þarf að redda mér solldið stórum skammti af viljastyrk til að ég eigi ekki eftir að svindla út í eitt... finnst svakalega gott að borða :/ en fyrsta skrefið er að setja sér takmark... og passa að það sé ekki alveg útí bláinn... þannig að þegar ég er búin að mæla mig í bak og fyrir held ég að það sé fínt og mátulegt að byrja á að ætla mér að missa 4 kíló á næstu tveim mánuðum.. er það kannski alltof mikið.. eða alltof lítið??? og svo er það bara að vera dugleg að mæta í ræktina og reyna breyta mataræðinu... nei ekki reyna.. breyta mataræðinu ;) Skrifa meir á morgun þegar mælingarnar eru búnar...
Posted at 02:06 pm by egma
Jæja... þá er ég búin að taka þá ákvörðun að hafa þetta blogg sem "megrunarbloggdæmi" Ég ætla á næstu dögum að fara í það að stíga á vigtina, setja mér takmörk og sollis og kem til með að þetta allt saman hérna inn :/ þetta er náttla bara gert fyrir mig.. sem sona pínu aðhald..dagbók... hvað sem þið viljið kalla það.. en ég vona bara að þetta gangi vel.. og að ég svindli ekki mikið. Skrifa meir þegar ég er ekki að springa eftir pizzu át :/
Posted at 01:05 pm by egma